PFS gefur út nýjar reglur um forval og fast forval í talsímanetum
Fréttasafn
16. ágúst 2010
PFS gefur út nýjar reglur um forval og fast forval í talsímanetum
Nýjar reglur Póst- og fjarskiptastofnunar um forval og fast forval í talsímanetum hafa tekið gildi með birtingu í Stjórnartíðindum þann 12. ágúst sl. Nýju reglurnar leysa af hólmi fyrri reglur frá árinu 2002.
Forval er möguleiki sem gerir notendum í talsímaþjónustu kleift að velja milli mismunandi þjónustuveitenda fyrir ákveðin símtöl þrátt fyrir að þeir séu fasttengdir talsímaneti tiltekins fjarskiptafyrirtækis.
Fast forval er möguleiki sem áskrifendum í talsímaþjónustu er boðinn og gefur þeim kost á að velja að ákveðnum flokkum símtala sé beint til ákveðins þjónustuveitanda, sem valinn er fyrirfram, án þess að nota þurfi forskeyti viðkomandi þjónustuveitanda.
Reglur nr 655/2010 um forval og fast forval í talsímanetum