Ákvörðun PFS: Neyðarlínan fær framlag úr jöfnunarsjóði alþjónustu
Fréttasafn
27. maí 2010
Ákvörðun PFS: Neyðarlínan fær framlag úr jöfnunarsjóði alþjónustu
Í dag, 27. maí 2010, samþykkti Póst- og fjarskiptastofnun umsókn Neyðarlínunnar ohf. um framlag úr jöfnunarsjóði alþjónustu fyrir árið 2010 að fjárhæð kr. 38.230.601. Um er að ræða framlag vegna talsímaþjónustu á sviði neyðarþjónustu og neyðarsímsvörunar sem Neyðarlínunni ohf. hefur verið gert skylt að veita.
Ákvörðun PFS nr. 15/2010: Umsókn Neyðarlínunnar ohf. um framlag úr jöfnunarsjóði fyrir árið 2010