Úrskurðarnefnd staðfestir ákvarðanir PFS um rekstrargjald
Fréttasafn
29. september 2009
Úrskurðarnefnd staðfestir ákvarðanir PFS um rekstrargjald
Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála hefur með úrskurði sínum staðfest endurákvarðanir Póst- og fjarskiptastofnunar frá því í maí sl. um rekstrargjald á fyrirtækin Snerpu ehf., Hringiðuna ehf og Tölvun ehf. Jafnframt staðfestir nefndin í úrskurði sínum að tölvupóstsþjónusta og internetaðgangur teljist til stofns rekstargjalds.
Sjá úrskurðinn í heild:
Úrskurður úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála í máli nr. 3/2009 (PDF)