Framtíðarnotkun NMT-450 MHz tíðnisviðsins
Framtíðarnotkun NMT-450 MHz tíðnisviðsins
Póst- og fjarskiptastofnun birtir í dag á heimasíðu sinni umræðuskjal þar sem stofnunin leitar umsagnar markaðs- og hagsmunaaðila um framtíðarnotkun NMT-450 MHz tíðnisviðsins. NMT-kerfið, eins og það er nefnt í daglegu tali, hefur gegnt veigamiklu þjónustu- og öryggishlutverki fyrir sjófarendur og aðra sem staðsettir eru utan þjónustusvæðis GSM-kerfisins. Fyrirséð er að rekstri NMT-kerfisins verði hætt á næstu 2-3 árum og er því mikilvægt að huga að því sem tekur við. Stofnunin telur mikilvægt að við ákvarðanatöku um framtíðarnotkun verði markmið fjarskiptaáætlunar höfð að leiðarljósi, m.a. um langdræg stafræn farsímakerfi.
Leitað er álits umsagnaraðila um hver sé æskilegur fjöldi rekstraraðila á tíðnisviðinu, fyrirkomulag uppbyggingar á farsímanetinu, heildsöluaðgang, þjónustu á netinu, kröfur um útbreiðslu, uppbyggingarhraða netsins, gjaldtöku af tíðnum og um markaðsleg áhrif slíks kerfis á önnur fjarskiptakerfi, t.d. 3ju kynslóð farsíma.
Öllum er heimilt að senda inn álit, en sérstaklega verður leitað eftir athugasemdum skráðra fjarskiptafélaga, auk helstu hagsmunaaðila. PFS mun skoða allar athugasemdir sem berast og leggja að því loknu fram tillögur um notkun tíðnisviðsins, bjóða það út, bjóða það upp eða úthluta því eftir eðli þeirra athugasemda og ábendinga sem fram kunna að koma.
Sérstök athygli er vakin á því að frestur til þess að skila inn umsögnum hefur verið framlengdur til 8. desember nk.
Nánari upplýsingar veitir Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar,
s. 510-1500 & 896-6953,
Umræðuskjal (PDF)