Evrópufundur um fjarskipti í Reykjavík í sumar
Fréttasafn
07. mars 2005
Evrópufundur um fjarskipti í Reykjavík í sumar
Búist er við að fulltrúar 40 ríkja og hagsmunahópa sitji fundinn og að erlendir gestir verði um 80 talsins.
Eitt meginverkefni fundarins er að samræma notkun einstakra tíðnisviða í Evrópu og setja reglur sem tryggja einn innri markað í Evrópu, bæði fyrir fjarskiptatæki og þjónustu. Niðurstöður fjölmargra vinnuhópa á hinum ýmsu sviðum verða kynntar og ræddar og þess freistað að ná sem víðtækustu samkomulagi um niðurstöður.
46 ríki eiga aðild að samstarfsvettvangi evrópskra stjórnvalda á sviði fjarskipta og einskorðast hann ekki við Evrópusambandsríki og þau ríki sem eiga aðild að samningnum um evrópska efnahagssvæðið.