Útboð í sambandi við þráðlaus notendakerfi á örbylgju
Útboð í sambandi við þráðlaus notendakerfi á örbylgju
Póst- og fjarskiptastofnun auglýsir eftir umsóknum um leyfi til reksturs þráðlausra notendakerfa á örbylgju, nánar tiltekið í tíðnisviðunum 3,4-3,6 Gigaherz og 10,15-10,3 Gigaherz.
Veitt verða að hámarki 4 leyfi í 3,4-3,6 Gigaherz sviðinu og að hámarki 6 leyfi í 10,15-10,3 Gigaherz sviðinu.
Umsóknarfrestur er til 30. júlí 2001 og má afhenda umsóknir í afgreiðslu Póst- og fjarskiptastofnunar til kl 16 þann dag. Með hverri umsókn skal fylgja greiðsla að upphæð kr. 50.000.
Þráðlaus notendakerfi tengja miðstöð leyfishafa við notendur á ákveðnu svæði og þjóna svipuðu hlutverki eins og heimtaugar í koparstrengjum. Þjónusta sem veitt er notendum samanstendur af talþjónustu og gagnaflutningi með bitahraða sambærilegum og í samnetinu.
Vegna aukins áhuga á þráðlausum notendakerfum í tíðnisviðinu 3,4-3,6 GHz er ekki öruggt að hægt verði framvegis að uppfylla allir óskir um úthlutun í þessu tíðnisviði.
Upplýsingar um útboðið má fá í afgreiðslu Póst- og fjarskiptastofnunar, Smiðjuvegi 68-70 í Kópavogi. Sömu upplýsingar eru hér fyrir neðan
Upplýsingar um þráðlaus notendakerfi á örbylgju. Útgefið í júní 2001 í sambandi við auglýsingu um umsóknir um leyfi. (pdf skjal)
Sjóðstreymisblað (Excel skjal)
Auglýsing um útboð vegna þráðlausra notendakerfa á örbylgju (pdf skjal)
11. janúar 2002: Fréttatilkynning um úthlutun leyfa fyrir þráðlaus notendakerfi á örbylgju.