Hoppa yfir valmynd

Vefráðstefna um öryggismál hlutaneta á neytendamarkaði

Fréttasafn
25. apríl 2023

Vefráðstefna um öryggismál hlutaneta á neytendamarkaði

Mynd með frétt

Fjarskiptastofa vekur athygli  á norrænni ráðstefnu um netöryggismál hlutaneta á neytendamarkaði þann 3. maí nk. frá 8:45-10:15 á Teams. Á fundinum verður farið það nýjasta á sviðinu og hvers má vænta.

Staðlaráð á norðurlöndunum standa að ráðstefnunni. Flutt verða erindi frá breskum og finnskum aðilum sem eru framarlega í að innleiða netöryggismál hlutaneta á neytendamarkaði. Einnig verða pallborðsumræður um stöðuna á Norðurlöndum. Fundurinn fer fram á ensku. 

Frekari upplýsingar um fundinn og skráning á hann er á vefsíðu fundarins Nordic IoT Webinar Consumer IoT cybersecurity labelling

Til glöggvunar á umfjöllunarefni ráðstefnunnar má benda á grein um Netöryggisáskoranir hlutaneta og leiðir til úrbóta eftir Þór Jes Þórisson sem verður einn fyrirlesara á ráðstefnunni. Þór er formaður FUT ( Fagstaðlaráð í upplýsingatækni).