Hoppa yfir valmynd

Fjarskiptastofa kallar eftir samráði um drög að nýjum reglum um númer, númeraraðir og vistföng á sviði fjarskipta

Fréttasafn
25. apríl 2023

Fjarskiptastofa kallar eftir samráði um drög að nýjum reglum um númer, númeraraðir og vistföng á sviði fjarskipta

Mynd með frétt

Fjarskiptastofa birtir nú til samráðs drög að nýjum reglum um  númer, númeraraðir og vistföng á sviði fjarskipta. Hinar nýju reglur munu taka við af eldri reglum nr. 590/2015 um skipulag, úthlutun og notkun númera, númeraraða og vistfanga, ásamt síðari breytingum. Markmið hinna nýju reglna er það sama og eldri reglna, þ.e. að kveða á um skilvirka úthlutun númera fyrir mismunandi þjónustu.

Helstu nýmæli hinna nýju reglna taka til skilyrða fyrir úthlutun númera, sbr. 6. gr. reglnanna, þar sem nú er opnað á þann möguleika að aðrir en fjarskiptafyrirtæki geti í sérstökum tilfellum óskað eftir úthlutun númera til eigin afnota. Þá er í 11. gr. reglnanna mælt fyrir um að framsal númera sé heimilt að uppfylltum nánari skilyrðum.

Þá skal þess getið að í 4. mgr. 6. gr. er opnað á heimild til úthlutunar á númerum fyrir þjónustur sem teygja sig yfir landamæri innan EES-svæðisins (e. cross-border and pan-european services) og vísað til viðmiðanna og reglna frá BEREC (samtök evrópska fjarskiptaeftirlitsstofnana) varðandi skilyrði slíkrar úthlutunar. BEREC hefur hins vegar ekki enn gefið út þessar viðmiðunarreglur.

Að loknu samráði og úrvinnslu mögulegra athugasemda umsagnaraðila verða hinar nýju reglur settar með stoð í 3. mgr. 20. greinar laga um fjarskipti nr. 70/2022 og munu öðlast gildi við birtingu í Stjórnartíðindum.

Samráðsfrestur er út föstudaginn 19. maí nk.

Drög að nýjum reglum um númer, númeraraðir og vistföng á sviði fjarskipta

Athugasemdir skulu berast með tölvupósti á netfangið: fjarskiptastofa@fjarskiptastofa.is