- Númer
E-4084/2021
- Heiti
Míla gegn Fjarskiptastofu
- Dagsetning
07.04.2022
- Málsaðilar
Míla ehf.
- Málaflokkur
Alþjónusta
- Lagagrein
20. gr. Skylda til að veita alþjónustu.
- Reifun
Með bréfi Fjarskiptastofu til Mílu ehf., þann 31. ágúst 2021, tilkynnti stofnunin félaginu að gildistími alþjónustukvaða sem hvíla á félaginu væri framlengdur til 31. desember 2022. Var þetta gert með vísun til sérstaks áskilnaðar í ákvörðun Fjarskiptastofu nr. 31/2017 um alþjónustuútnefningu Mílu ehf. sem félagið kærði ekki á sínum tíma.
Míla ehf. taldi að með tilkynningu Fjarskiptastofu til félagsins hefði stofnunin tekið nýja stjórnvaldsákvörðun sem haldin væri annmörkum bæði hvað varðar form og efni. Að áliti Fjarskiptastofu var aftur á móti einungis um að ræða framkvæmd á gildandi ákvörðun og kæra Mílu því lögð fram löngu eftir að kærufrestur á ákvörðuninni rann út. Í kærumáli fyrir úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála féllst nefndin á frávísunarkröfu Fjarskiptastofu á grundvelli þessara sjónarmiða.
Í dóminum er kröfu kröfu Mílu ehf. á ógildingu úrskurðarins hafnað. Fellst dómurinn ekki á sjónarmið Mílu að um nýja og sjálfstæða stjórnvaldsákvörðun hafi verið að ræða. Í dóminum er m.a. bent á að efni ákvörðunarinnar og raunveruleg þýðing hennar fyrir Mílu ehf., þ.m.t. ákvæðis um framlengingu, hafi legið fyrir þegar á árinu 2017. Undir þeim kringumstæðum yrði ekki séð að sérstök efni stæðu til þess að telja framlengingu kvaðarinnar vera stjórnvaldsákvörðun eða ákvörðun sem væri í öllu falli kæranleg. Ákvæði 60. og 70 gr. stjórnarskrárinnar stæðu því heldur ekki í vegi.
- Staða máls
Lokið
- Tengt efniEkkert tengt efni skráð
- Skjöl