- Fjarskiptastofa
- Fjarskiptainnviðir
- Skipa- og flugfjarskipti
- Skráð fjarskiptafyrirtæki
- Fjarskiptatæki og búnaður
- Tíðnimál
- Farsímanet
- Truflanir á farsímasambandi
- Upplýsingar fyrir neytendur
- Númer og vistföng
- Radíóamatörar
- Fyrirhugaðar jarðvegsframkvæmdir
- Ljósleiðarauppbygging og ríkisstyrkir
- Fjarskiptalagnir í íbúðarhúsnæði
- Gervihnattaþjónusta
- Vefsjá Fjarskiptastofu
- Skráningar og leyfi
Skráningar og leyfi
Almenn heimild til reksturs fjarskiptaneta
Fjarskiptafyrirtæki hafa almenna heimild til að veita fjarskiptaþjónustu og/eða bjóða fram fjarskiptanet. sbr. 6. gr. laga nr. 70/2022 um fjarskipti. Fjarskiptafyrirtæki skal áður en starfsemi hefst tilkynna Fjarskiptastofu um fyrirhugaða fjarskiptaþjónustu eða rekstur fjarskiptaneta. Veita skal upplýsingar sem nauðsynlegar eru vegna skráningar á viðkomandi fjarskiptafyrirtæki og starfsemi þess. Starfseminni ber síðan að haga í samræmi við fjarskiptalög og reglur sem Fjarskiptastofa hefur sett um almenna heimild til reksturs fjarskiptaneta og þjónustu sbr. 8. gr. laga nr. 70/2022.
Tilkynning um fyrirhugaða fjarskiptastarfsemi skv. almennri heimild - rafrænt eyðublað
Fjarskiptastofa heldur skrá yfir þau fjarskiptafyrirtæki sem starfa skv. almennri heimild:
Gjöld
Skv. lögum nr. 75/2021 um Fjarskiptastofu skulu fjarskiptafyrirtæki greiða árlega 0,38 % af bókfærðri veltu í rekstrargjald. Með bókfærðri veltu er átt við rekstrartekjur sem þessir aðilar hafa af fjarskiptastarfsemi sinni hér á landi.
Innheimta skal jöfnunargjald frá fjarskiptafyrirtækjum til að standa straum af fjárframlögum til alþjónustu. Jöfnunargjald skal nema 0,10% af bókfærðri veltu.
Fjarskiptafyrirtæki sem fá úthlutað númerum greiða gjöld skv. 3. mgr. 14. gr. laga nr. 69/2003. Auk þess geta komið til ýmis gjöld skv. gjaldskrá vegna tækjabúnaðar og afnota af tíðnum.
Verklagsreglur um skráningu og miðlun upplýsinga um áskrifendur í símakerfum
Þann 28. janúar 2016 voru birtar nýjar verklagsreglur um skráningu og miðlun upplýsinga um áskrifendur sem úthlutað hefur verið númerum í fastlínu- og farsímakerfum.
Fjarskiptastofa vann að endurskoðun á verklagsreglunum með hliðsjón af því hvernig slík skráning og miðlun gekk fyrir sig frá því nýtt fyrirkomulag um miðlun símaskrárupplýsinga tók gildi þann 1. júlí 2014.