- Fjarskiptastofa
- Fjarskiptainnviðir
- Skráð fjarskiptafyrirtæki
- Fjarskiptatæki og búnaður
- Tíðnimál
- Farsímanet
- Truflanir á farsímasambandi
- Upplýsingar fyrir neytendur
- Skráningar og leyfi
- Númer og vistföng
- Radíóamatörar
- Fyrirhugaðar jarðvegsframkvæmdir
- Ljósleiðarauppbygging og ríkisstyrkir
- Fjarskiptalagnir í íbúðarhúsnæði
- Gervihnattaþjónusta
- Vefsjá Fjarskiptastofu
- Skipa- og flugfjarskipti
Skipa- og flugfjarskipti
Skipafjarskipti
GMDSS (Global Maritime and Safety System) stendur fyrir alþjóðlegt neyðar- og öryggiskerfi fyrir sjófarendur. Á því byggjast neyðarfjarskipti skipa.
Skoðun fjarskiptabúnaðar og útgáfa öryggisvottorða
Skoða þarf árlega fjarskiptabúnað í öllum skipum. Í öllum tilfellum fylla skoðunarmenn út skoðunarskýrslur.
Fjarskiptastofa skoðar fjarskiptabúnað í öllum fiskiskipum lengri en 24 m. Einnig í þeim fiskiskipum undir 24 m. að lengd sem sigla út fyrir hafsvæði A1. Samgöngustofa gefur út öryggisvottorð fyrir þessi skip.
Faggildar skoðunarstofur skoða fjarskiptabúnað í bátum og skipum sem eingöngu sigla á hafsvæði A1. Skoðunarstofurnar senda skoðunarskýrslur til Fjarskiptastofu sem gefur út öryggisvottorð fyrir viðkomandi skip/báta.
Skoðunarhandbók (Fjarskiptabúnaður fiskiskipa undir 24 metrum sem einungis sigla á A1 svæði)
Fjarskiptastofa skoðar fjarskiptabúnað í öðrum skipum svo sem farþegaskipum og flutningaskipum. Á grundvelli skoðunarskýrslu gefur stofnunin út öryggisvottorð fyrir þessi skip.
Skilgreining hafsvæða
Kröfur um búnað ráðast af því hafsvæði sem skipið hefur heimild til að sigla á (A1 , A2, A3 og A4).
Hafsvæði A1: Er hafsvæði sem takmarkast af langdrægi strandstöðvar til talfjarskipta og viðvarana með stafrænu valkalli (DSC) á metrabylgju (VHF).
Hafsvæði A2: Er svæði utan við hafsvæði A1, sem takmarkast af langdrægi strandstöðvar til talfjarskipta og viðvarana með stafrænu valkalli (DSC) á millibylgju (MF).
Hafsvæði A3: Er svæði utan hafsvæða A1 og A2, sem takmarkast af langdrægi kyrrstæðra INMARSAT gervihnatta til sendinga viðvarana, þ.e. milli 70° N og 70° S
Hafsvæði A4: Er svæði utan hafsvæða A1, A2 og A3.
Númer skipa
Í eftirfarandi skrám er að finna upplýsingar um númer sem úthlutað hefur verið til íslenskra skipa:
MMSI (AIS, DSC og 406 MHz neyðarbaujur), Standard C og Selcall (Radíótelex):
Númeraskrárnar (Excel skjöl) uppfærðar síðast: 07.11.2024
MMSI númer skipa - í MMSI númeraröð
MMSI númer skipa - eftir skipaskrárnúmeri
Flugfjarskipti
Um fjarskipti við flugvélar og fjarskiptabúnað um borð í þeim gilda sérstakar reglur.
Leyfisbréf fyrir fjarskiptabúnað
Fyrir fjarskiptabúnað um borð í öllum flugvélum skal vera leyfisbréf, útgefið af Fjarskiptastofu.
Umsókn um leyfisbréf fyrir tækjabúnað í flugvél (Rafrænt umsóknareyðublað)
Þeir sem annast fjarskipti um borð í flugvélum verða að hafa til þess tilskilin réttindi.
Frekari upplýsingar veitir Hörður R. Harðarson.