- Fjarskiptastofa
- Fjarskiptainnviðir
- Skipa- og flugfjarskipti
- Skráð fjarskiptafyrirtæki
- Fjarskiptatæki og búnaður
- Tíðnimál
- Farsímanet
- Truflanir á farsímasambandi
- Upplýsingar fyrir neytendur
- Skráningar og leyfi
- Númer og vistföng
- Radíóamatörar
- Fyrirhugaðar jarðvegsframkvæmdir
- Ljósleiðarauppbygging og ríkisstyrkir
- Fjarskiptalagnir í íbúðarhúsnæði
- Gervihnattaþjónusta
- Vefsjá Fjarskiptastofu
- Farsímanet
- Farsímasamband - útbreiðslukort
Farsímasamband - útbreiðslukort
Fjarskiptakortin sýna útbreiðslusvæði farsíma- og farnetsþjónustu fyrir GSM, 3G og 4G þjónustu.
ATH - Unnið er að uppfærslu á kortasjánni!
Á kortunum eru sýnd þau svæði þar sem líklegast er að ná nýtanlegu merki, þannig að hægt sé að tala í farsíma, senda smáskilaboð eða að ná gagnasambandi.
Á kortunum er leitargluggi þar sem hægt er að slá inn heimilisfang.
Rétt er að hafa eftirfarandi í huga þegar kortin eru skoðuð:
- Spár byggja á gögnum frá fjarskiptafélögunum sem miða við ólíkar forsendur fyrir útbreiðslu
- Útbreiðslukortin eru reiknuð út frá spálíkönum og miðuð við dreifingu frá kerfum allra fjarskiptafélaganna þannig að ekki er víst að merki náist frá öllum félögunum á þeim stöðum sem kortin sýna að merki náist
- Gera þarf ráð fyrir að t.d. veður, landslag og aðrir hugsanlegir utanaðkomandi þættir geti haft áhrif á dreifingu fjarskiptamerkja til eða frá
- Merki dofnar þegar símtæki er inni í bíl eða inni í húsi, því fjær veggjum eða þaki sem tækið er, því lakara merki næst. Þannig næst merki yfirleitt síst inni í miðju húsi og niðri í kjallara
- Móttaka getur verið mismunandi milli símtækja, þ.e. loftnet símtækja og staðsetning þeirra í tækinu getur verið mjög mismunandi
Mælingar á fjarskiptasambandi á vegum
Hér má hlaða niður nýjstu spám fjarskiptafélaganna varðandi talþjónustu (GSM og 3G) og háhraðafarnetsþjónustu (3G og 4G): Slóð
Hér má hlaða niður mælingum PFS á GSM, 3G, 4G og TETRA kerfum seinustu ár: Slóð
Vefsíður símafyrirtækjanna sem sýna dreifingu farsímakerfsins hjá viðkomandi þjónustuaðila.
Síminn - dreifikerfi GSM og 3G